Maintenance Manager
borealisdatacenter
- Employment
- Full-time
About the role
Við hjá Borealis Data Center óskum eftir að ráða drífandi og lausnamiðaðan einstakling til að gegna stöðu Maintenance Manager á starfsstöð okkar á Blönduósi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með rafhlöðuvaraafli og tryggja samfellda orkugjöf.
- Tryggja skilvirka dreifingu raforku.
- Eftirlit, viðhald, viðgerði, bilanagreiningar og uppsetningar.
- Umsjón með og hámarka kælikerfi, þar á meðal CRAC/CRAH einingar, kælivélar, kæliturna og heita-/kalda ganga skiptingu.
- Innleiða reglubundið eftirlit og forspárgreiningu til að fyrirbyggja bilanir
- Bregðast við kerfisbilunum, rafmagnsleysi eða umhverfisvá
- Tryggja að öryggis- og rekstrarstaðlar séu uppfylltir
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, svo sem rafvirkjun eða sambærileg menntun.
- Þekking á ISO 27001 og ISO 50001 er kostur.
- Reynsla af notkun eMaint CMMS er kostur
- Þekking á loftræsti- og kælikerfum (HVAC), kælitækni og vélrænum innviðum í rekstrarumhverfi
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna þvert á teymi.
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
- Geta til að vinna undir álagi og bregðast hratt við aðstæðum.
- Umbótahugarfar, öflug öryggisvitund og þjónustulund.
- Góð færni í íslensku og ensku.
- Hreint sakavottorð.
Um Borealis Data Center
Borealis Data Center var stofnað árið 2014 og rekur í dag fjögur gagnaver á Íslandi og í Finnlandi. Frá upphafi hefur markmið Borealis verið að veita framúrskarandi, örugga og sjálfbæra þjónustu til viðskiptavina okkar. Við vinnum með viðskiptavinum víða að úr heiminum að því að bjóða sveigjanlegar gagnaverslausnir sem styðja við rekstur framtíðarinnar.
Hjá Borealis Data Center leggjum við ríka áherslu á fjölbreytileika og inngildingu á vinnustaðnum og því hvetjum við alla, óháð kyni eða bakgrunni, til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Birna Dís Bergsdóttir, HR Coordinator, birna@bdc.is
755,000+ hidden jobs like this
borealisdatacenter and thousands of companies post here first — often days before LinkedIn or Indeed. Your first 5 applications are free; go Pro to apply without limits.
Everything Pro unlocks:
- Unlimited applications — free stops at 5
- Track every application in one place
- Apply straight to the source, one click
- Save & organize roles you love
- Roles pulled from company boards before the big sites